Útlit er fyrir að Chelsea verði ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð en liðið er að tapa fyrir Aston Villa, 2-0, á Stamford Bridge.
Chelsea hefur keypt leikmenn fyrir rúman hálfan milljarð punda síðasta árið en það er ekki alltaf hægt að kaupa árangur.
Villa komst yfir gegn Chelsea á 18. mínútu. John McGinn kom með langan bolta sem Marc Cucurella skallaði aftur fyrir sig og í hlaupalínuna hjá Ollie Watkins sem skoraði af miklu öryggi.
McGinn bætti við öðru snemma í síðari hálfleik með glæsilegu skoti fyrir utan teig eftir hornspyrnu.
Ef þetta verða lokatölur á Stamford Bridge er Chelsea áfram ellefu stigum frá fjórða sætinu og alveg ljóst að liðið á litla sem enga möguleika á að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili.
Sjáðu markið hjá Watkins
Sjáðu fallegt mark McGinn
Athugasemdir