Roy Hodgson tók óvænt við Crystal Palace á dögunum en hann sagðist vera hættur eftir síðasta tímabil.
Hann stýrði Palace frá 2017-2021 en er nú mættur aftur eftir að Patrick Vieira var látinn taka pokann sinn.
Leikur Crystal Palace og Leicester er ný hafinn en það er fyrsti leikur liðsins í endurkomu Hodgson.
„Ég er stressaður, ég hef alltaf verið stressaður mér finnst það vera partur af því að vera stjóri, kannski á það að vera svoleiðis," sagði Hodgson.
Hann hefur verið ánægður með æfingarnar og vonast til að liðið sýni mikið sjálfstraust í leiknum í dag.
Athugasemdir