Liverpool náði forystunni í stórleiknum á Etihad en það var enginn annar en Mohamed Salah sem skoraði markið.
Liverpool komst í skyndisókn þegar Trent Alexander Arnold átti langa sendingu fram á Diogo Jota sem var við það að sleppa einn í gegn. Manuel Akanji náði að hægja á honum en Jota gerði gríðarlega vel með því að skilja boltann eftir fyrir Salah.
Egyptinn kom á fleygiferð inn á teiginn og neldi boltanum í netið.
Julian Alvarez er í byrjunarliðinu í stað Erling Haaland sem er á meiðslalistanum en Alvarez jafnaði metin eftir tæplega hálftíma leik.
Erling Haaland enjoyed that Man City equalizer ?
— Football on BT Sport (@btsportfootball) April 1, 2023
Can you tell? ???? pic.twitter.com/o2RPGoV0nl
Athugasemdir