Fotbolti.net
01.05.17 - 19:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Oliver Sigurjóns: Ætluðum að breyta þessu heimaleikjahruni

Auglýsing
Oliver var svekktur í viðtali eftir leik.

Oliver var svekktur í viðtali eftir leik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er ekki það sem við ætluðum okkur,\" sagði Oliver Sigurjónsson, miðjumaður Breiðabliks, eftir 1-3 tap gegn nýliðum KA á Kópavogsvelli í dag. Þetta var fyrsti leikur liðanna í Pepsi-deildinni.

„Þetta er ekki góð byrjun, við ætluðum að breyta þessu heimaleikjahruni frá því í fyrra og það gekk ekki í dag.\"
Breiðablik leit hreinlega ekki vel út í þessum leik og sigur KA var sanngjarn. Oliver tók undir það.

„Ég er mjög sammála, við vorum seinir og ekki tilbúnir í baráttuna. Við erum seinir í öll einvígi,\" sagði hann, en af hverju voru Blikar ekki klárir í baráttuna? Hann var spurður út í það.

„Ég hef ekki sögu af því, en það þarf að breytast strax í dag. Þetta var ekki í lagi og við þurfum í fyrsta lagi á undan í pressu og á undan í einvígi ef við ætlum að gera eitthvað í þessari deild.\"

Hann segir að KA-liðið hafi ekki komið sér á óvart.

„Alls ekki. Þetta var það sem við bjuggumst við.\"

Í spilaranum hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.