Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. maí 2021 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Lettland: Aftur tapaði Riga án Axels
Mynd: Riga
Lettnesku meistararnir í Riga FC eru á skrítnum stað í töflunni í dag. Liðið hefur haft yfirburði í deildinni síðustu ár en er í 3. sæti í dag.

Liðið tapaði sínum öðrum leik í röð í gær og var Axel Óskar Andrésson aftur ekki í liðinu. Í þetta skiptið var Axel þó á bekknum en kom ekki við sögu. Hann er að koma til baka eftir meiðsli.

Valmiera vann 2-1 heimasigur á meisturunum en Valmiera er í toppsætinu með sautján stig eftir sjö umferðir. RFS er í öðru sæti með fjórtán stig og svo kemur Riga með þrettán stig.

Í þeim fjórum leikjum sem Axel hefur byrjað hefur Riga unnið sigur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner