Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 01. maí 2021 15:26
Aksentije Milisic
Rússland: Arnór lék þegar CSKA missteig sig á heimavelli
Mynd: Getty Images
CSKA 1-1 FC Ufa
0-1 Filip Mrzljak ('66)
1-1 Fedor Chalov ('71)

Arnór Sigurðsson var í byrjunarliði CSKA í dag þegar liðið fékk næst neðsta lið deildarinnar í heimsókn, FC Ufa.

Arnór var tekinn af velli í hálfleik en þá var staðan 0-0. Gestirnir komust síðan yfir á 66. mínútu þegar Filip Mrzljak skoraði.

FC Ufa er í bullandi fallbaráttu og átti CSKA í stökustu vandræðum með liðið. Fedor Chalov náði hins vegar að jafna metin þegar um tuttugu mínútu voru til leiksloka.

Meira var ekki skorað og því mjög slæm úrslit fyrir CSKA. Nú stefnir allt í það að liðið nái ekki öðru sætinu en það gefur sæti í umspil Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir
banner