Real Madrid hefur áhuga á Declan Rice, Alisson vill fara til Juventus og stórlið berjast um Rafael Leao sem vill fara frá AC Milan. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Stjórnarmenn Real Madrid vilja að félagið reyni að fá Declan Rice (27), miðjumann Arsenal, en þeir eru sagðir hrifnir af leiðtogahæfileikum hans, styrk og tækni. (Teamtalk)
Alisson (33), markvörður Liverpool, ætlar að segja næsta stjóra félagsins að hann vilji yfirgefa Anfield og ganga til liðs við Juventus. (Gazzetta dello Sport)
Manchester United er nálægt samkomulagi um kaup á Ederson (26), brasilískum miðjumanni Atalanta, fyrir um 35 milljónir punda. (Talksport)
Joao Palhinha (30), leikmaður Bayern Munchen, vill ekki vera áfram hjá Tottenham eftir lánsdvöl sína í Lundúnum og vill frekar reyna að komast til Sporting. (A Bola)
Manchester United, Chelsea, Arsenal, Tottenham, Liverpool og Newcastle hafa öll áhuga á Rafael Leao (26), portúgölskum vængmanni AC Milan, sem vill yfirgefa félagið í sumar. (Calciomercato)
PSG dregur sig úr baráttunni um Julian Alvarez (26), framherja Atletico Madrid, en Arsenal og Barcelona halda áfram að bera víurnar í hann. (Mundo Deportivo)
Harry Maguire (33), varnarmaður Manchester United, hefur verið boðinn til Inter en ítalska félagið setur kaup á honum ekki í forgang. (Gazzetta dello Sport via Football Italia)
Bernardo Silva (31), miðjumaður Manchester City, vill ganga til liðs við Barcelona en samningur hans við City rennur út í lok júní. (Mundo Deportivo)
Brighton fær samkeppni frá Hoffenheim og Frankfurt um Patrick Wimmer (25), austurrískan vængmann Wolfsburg. (Florian Plettenberg)
Crystal Palace er komið langt í viðræðum við Pierre Sage, stjóra Lens. (Mail)
Cesc Fabregas, stjóri Como, er ánægður hjá ítalska félaginu þrátt fyrir að hafa verið orðaður við önnur störf, þar á meðal hjá Real Madrid. (Sport)


