Besta deildin: Eyjamenn á flugi - Fimmtán ára opnaði markareikninginn í sigri Blika

Arnar Bjarki skoraði sitt fyrsta deildarmark fyrir Blika og það aðeins 15 ára gamall

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eyjamenn unnu Stjörnuna

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Marin Mudrazija skoraði mark Keflvíkinga gegn Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Freyr bjargaði stigi fyrir Þór

FH-ingar gerðu 1-1 jafntefli við Þór í 11. umferð Bestu deildar karla í Kaplakrika í kvöld. ÍBV heldur einnig áfram á flugi en liðið vann sinn þriðja leik í röð með 2-1 sigri á Stjörnunni á Hásteinsvelli.
FH mistókst að fylgja eftir fyrsta sigri tímabilsins þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Þór í Kaplakrika.
Lærisveinar Jóhannesar Karls Guðjónssonar voru lengi að komast í gang á tímabilinu og fyrsti sigurinn kom ekki fyrr en í síðustu umferð þegar FH vann Keflavík, 2-1. Það var gríðarlegur léttir fyrir Hafnfirðinga sem freistuðu þess að tengja saman sigra í kvöld.
Úlfur Ágúst Björnsson kom FH yfir á 23. mínútu með marki sem kom eftir talsvert bras í teignum. Þórsarar misstu boltann og Úlfur kom honum á Kjartan Kára Halldórsson. Hann sendi áfram á Tómas Orra Róbertsson sem kom boltanum inn á teiginn.
Þórsarar skölluðu frá, en ekki lengra en á Kjartan sem lét vaða að marki. Boltinn barst þaðan á Úlf sem setti hann fyrst í stöngina en fékk boltann aftur og kom honum í netið.
Úlfur komst svo einn í gegn undir lok fyrri hálfleiks en skot hans fór beint á Aron Birki Stefánsson í marki Þórs.
FH-ingar voru líklegri í síðari hálfleik og náðu að skapa sér ágætar stöður, en Þór fékk vítaspyrnu á 74. mínútu. Ásbjörn Líndal Arnarsson og Kristján Flóki Finnbogason börðust um boltann eftir innkast og atvikið endaði með því að Kristján braut á Ásbirni.
Einar Freyr Halldórsson fór á punktinn og skoraði af öryggi. FH var líklegra liðið til að finna sigurmarkið eftir það en það kom ekki.
Niðurstaðan varð 1-1 jafntefli. FH mistókst því að vinna annan leikinn í röð og er áfram á botninum með sex stig. Þór er í næstneðsta sæti með sjö stig.
Þriðji sigurinn í röð hjá ÍBV
Eyjamenn eru komnir á mikið flug og unnu sinn þriðja leik í röð þegar þeir lögðu Stjörnuna að velli, 2-1, á Hásteinsvelli.
Stjörnumenn byrjuðu leikinn af krafti og Benedikt V. Warén kom þeim yfir eftir tæpa mínútu. Daníel Finns Matthíasson sendi þá fyrir frá vinstri, Ari í marki ÍBV sló boltann út í teiginn og þar var Benedikt mættur til að skora.
Heimamenn svöruðu hins vegar með tveimur mörkum á fjögurra mínútna kafla í fyrri hálfleik. Sesar Örn Harðarson jafnaði metin með skoti í stöng og inn eftir góða sókn og skömmu síðar kom Bjarki Björn Gunnarsson ÍBV yfir.
Eyjamenn unnu boltann eftir innkast Stjörnunnar, komu honum á Bjarka sem fór framhjá Árna Snæ Ólafssyni í marki gestanna og setti boltann í tómt markið.
Það var líf í leiknum í síðari hálfleik og þrjú góð færi litu dagsins ljós á stuttum kafla. Emil Atlason skaut yfir úr dauðafæri áður en Árni Snær varði fast skot Sesars. Skömmu síðar varði markvörður Stjörnunnar aftur frábærlega, í þetta sinn aukaspyrnu frá Vicente Valor.
Eyjamenn vildu fá vítaspyrnu á lokamínútunum þegar Omar Sowe féll í teignum í miðju skoti, en dómarinn sá ekkert athugavert við atvikið. Heimamenn voru afar ósáttir en fögnuðu þó sigri í leikslok.
ÍBV hefur nú unnið þrjá leiki í röð og er komið upp í 9. sæti með ellefu stig. Stjarnan er í 8. sæti, einnig með ellefu stig en betri markatölu.
Jafnt á Hlíðarenda
Valur og Keflavík skildu jöfn, 1-1, á Hlíðarenda.
Tryggvi Hrafn Haraldsson kom Valsmönnum yfir á 19. mínútu. Jakob Franz Pálsson átti þá frábæra sendingu inn fyrir vörn Keflvíkinga á Tryggva, sem hægði aðeins á sér, lék á Davíð Helga Aronsson og setti boltann upp við nærstöngina.
Fáeinum mínútum síðar kom upp umdeilt atvik. Alpha Conteh keyrði fram hjá Ingimar Stöle og komst einn á móti Frederik Schram úr þröngri stöðu. Skot hans fór í andlit Frederiks sem lá eftir, en Conteh náði frákastinu og kom boltanum aftur að marki. Þá bjargaði Ólafur Flóki Stephensen á línu.
Keflvíkingar vildu fá vítaspyrnu fyrir hendi á Ólaf en fengu ekkert.
Gestirnir uppskáru jöfnunarmark þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Þeir tóku stutta hornspyrnu og Conteh fékk mikinn tíma á boltann áður en hann sendi fyrir. Marin Mudrazija var óvaldaður í teignum og stangaði boltann í netið.
Valsmenn voru nálægt því að gera sigurmarkið undir lokin. Ingimar Stöle sendi fyrir á Kristófer Dag Arnarsson sem skallaði að marki en Ásgeir Orri varði. Valur vann boltann aftur og Tryggvi átti hörkuskot, en Ásgeir varði einnig það.
Sigurmarkið kom ekki og lokatölur urðu 1-1. Valur er í 5. sæti með sextán stig en Keflavík í 7. sæti með tólf stig.
Fimmtán ára skoraði í sigri Blika
Breiðablik vann KA, 3-1, á Kópavogsvelli.
Blikar voru meira með boltann fyrsta stundarfjórðunginn og það skapaðist nokkrum sinnum hætta við teig KA-manna, en heimamönnum tókst ekki að nýta sér yfirburðina.
Staðan var markalaus í hálfleik en mörkin létu loksins sjá sig í þeim síðari.
Ágúst Orri Þorsteinsson kom Blikum yfir þegar hann keyrði upp völlinn, fór framhjá Markúsi Mána Péturssyni og setti boltann á milli fóta Steinþórs Más Auðunssonar og í netið.
Akureyringar voru ekki lengi að jafna. Danijel Dejan Djuric átti frábæra utanfótarsendingu inn á Birgi Baldvinsson sem tæklaði boltann í netið.
Óli Valur Ómarsson kom Blikum aftur yfir á 74. mínútu. Hann fékk boltann frá Viktori Karli Einarssyni, lék á varnarmann og stýrði boltanum framhjá hreyfingarlausum Steinþóri. Laglegt mark.
Fimmtán ára Arnar Bjarki Gunnleifsson gerði síðan út um leikinn skömmu síðar með sínu fyrsta marki í meistaraflokki eftir sendingu frá Aroni Bjarnasyni.
Frábær sigur Blika sem eru í 4. sæti með nítján stig. KA er í 10. sæti með tíu stig.
FH 1 - 1 Þór
1-0 Úlfur Ágúst Björnsson ('23 )
1-1 Einar Freyr Halldórsson ('74 , víti)
Lestu um leikinn
Valur 1 - 1 Keflavík
1-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('19 )
1-1 Marin Mudrazija ('71 )
Lestu um leikinn
ÍBV 2 - 1 Stjarnan
0-1 Benedikt V. Warén ('1 )
1-1 Sesar Örn Harðarson ('28 )
2-1 Bjarki Björn Gunnarsson ('32 )
Lestu um leikinn
Breiðablik 3 - 1 KA
1-0 Ágúst Orri Þorsteinsson ('58 )
1-1 Birgir Baldvinsson ('63 )
2-1 Óli Valur Ómarsson ('74 )
3-1 Arnar Bjarki Gunnleifsson ('85 )