Alisson vill fara til Juventus - Real Madrid sýnir Rice áhuga - Stórlið berjast um Rafel Leao
   mán 01. júní 2026 16:23
Kári Snorrason
Heimild: 433.is 
Auðun neitar að hafa tekið leikmann hálstaki - „Fer reglulega inn á völlinn með þann ásetning að meiða“
Auðun Helgason.
Auðun Helgason.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Sigurður Bjarni Aadnegard.
Sigurður Bjarni Aadnegard.
Mynd: Úr einkasafni
Frá atvikinu.
Frá atvikinu.
Mynd: X/Kristjanoli
Upp úr sauð eftir 1-1 jafntefli Þróttar Vogum og Kormáks/Hvatar í gær.

Á myndbandi sem Kristján Óli Sigurðsson birti á X sést Auðun Helgason, þjálfari Þróttar Vogum, taka um Sigurð Bjarna Aadnegard, leikmann Kormáks/Hvatar og áttu þeir í orðaskiptum.

Í samtali við 433.is segir Sigurður hafa orðið fyrir árás eftir leikinn og er með myndir af áverkum á hálsi. Auðun þvertekur þó fyrir að hafa tekið leikmanninn hálstaki.


Auðun segir við 433.is að hann sé orðinn þreyttur á framkomu Sigurðar í leikjum og segir hann mæta inn á völlinn með þann ásetning að meiða.

„Ég hef ekki þekkt hann í mörg ár en hef séð hann spila fótbolta í tvö ár. Hann er einn af þessum leikmönnum sem fer mjög reglulega inn á völlinn með þann ásetning að meiða andstæðinginn. Það gerir hann í gær í þrígang og endar með því að hann fer með olnbogann í andlitið á leikmanni okkar og nefbrýtur hann,“ segir Auðun.

Eftir leik segist Auðun hafa ætlað að þakka Sigurði fyrir leikinn en jafnframt láta hann vita að framkoma hans hefði verið óboðleg. Hann segir að sér hafi verið heitt í hamsi, en að hann hafi verið rólegur þegar hann tók utan um Sigurð og sagði honum sína skoðun.

„Ég held utan um hann og hann sagði mér að halda kjafti eða eitthvað, eins og menn segja í hita leiksins. Þá festist takkaskórinn hans í reimunum mínum og ég gríp fastar utan um hann, þetta var klaufalegt.“

„Leikmenn koma svo á milli og þá verður einhver svona dramatík, en gott og vel. En ef hann er með einhverja áverka er það ekki því ég tók hann hálstaki. Ég tek algjörlega fyrir að hafa tekið hann hálstaki,“
segir Auðun jafnframt.

433.is greinir jafnframt frá því að málið sé komið á borð Aga- og úrskurðarnefndar KSÍ.

Slapp
banner
banner