Landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson gæti verið á förum frá Djurgarden í sumar.
Sænski miðillin Expressen greinir frá tíðindunum og segir Mikael hafa rætt við félagið um möguleikann að fara. Mikael gekk til liðs við félagið fyrir tæpu ári síðan en samningur hans rennur út 2029.
Sænski miðillin Expressen greinir frá tíðindunum og segir Mikael hafa rætt við félagið um möguleikann að fara. Mikael gekk til liðs við félagið fyrir tæpu ári síðan en samningur hans rennur út 2029.
Þá greinir danski miðillinn KSDH.dk frá því að þrjú dönsk félög séu á höttunum eftir Mikael og að viðræður séu hafnar.
AGF er eitt þeirra liða en hann hafði verið hjá liðinu í rúm fjögur ár áður en hann gekk til liðs við Djurgarden í fyrra.

