Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 01. júlí 2022 14:00
Elvar Geir Magnússon
AC Milan ræðir við Chelsea um Ziyech
Hakim Ziyech.
Hakim Ziyech.
Mynd: EPA
AC Milan hefur hafið viðræður við Chelsea en Ítalíumeistararnir hafa áhuga á því að fá vængmanninn Hakim Ziyech lánaðan.

Þessi 29 ára leikmaður hefur lengi verið á blaði hjá Milan en forráðamenn félagsins eru bjartsýnir á að geta landað honum núna.

Ziyech er ekki sáttur við hlutskipti sitt hjá Chelsea og vill færa sig um set. Hann hefur verið hjá félaginu síðan hann var keyptur á 33 milljónir punda frá Ajax 2020.

Marokkómaðurinn hefur skorað 14 mörk í 83 leikjum fyrir Chelsea en hefur að mestu verið notaður sem varamaður síðan Thomas Tuchel tók við liðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner