Fotbolti.net
01.08.18 - 21:06
Arnar Daði Arnarsson

Jói Kalli: Sigldum þessu heim af fagmennsku

Auglýsing
Jóhannes Karl þjálfari ÍA.

Jóhannes Karl þjálfari ÍA.

Canon

Mynd: Ingunn Hallgrímsdóttir

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari ÍA var ánægður eftir 3-1 sigur sinna manna gegn Haukum á Ásvöllum í kvöld í 14. umferð Inkasso-deildarinnar.

Haukar komust yfir í byrjun leiks en Skagamenn jöfnuðu metin eftir tæpan hálftíma leik.
„Við byrjuðum ekki leikinn eins og við ætluðum okkur. Við gefum Haukum ódýrt mark í byrjun og ég var virkilega ósáttur með það. Við létum það ekki slá okkur út af laginu og vorum þolinmóðir og héldum boltanum. Við náðum að jafna þokkalega fljótlega og ég var ánægður með það.\"

„Við hefðum sjálfum sér getað gert fullt af hlutum betur. Náð betra tempó-i sérstaklega í fyrri hálfleiknum. Í heildina fannst mér við stjórna leiknum.\"

Eftir að Jeppe Hansen kom Keflavík í 3-1 í upphafi seinni hálfleiks voru úrslitin gott sem ráðin.

„Þetta var mjög skrýtið. Leið og við náðum inn þriðja markinu þá vorum við að reyna vera þolinmóðir að halda boltanum og færa hann kantana á milli og sjá hvort við gætum eitthvað reynt að opna Haukana eitthvað meira. Þeir voru í rauninni nánast allan leikinn með alla leikmenn fyrir aftan boltann og voru að reyna verjast og vera þéttir. Þeir virtust ekkert hafa mikinn áhuga á að koma framar á völlinn. Leikurinn þannig lagað fjaraði út í kjölfarið. Við sigldum þessum heim af fagmennsku og stundum þarf maður að gera það þannig.\"

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.