Fotbolti.net
15.07.26 - 16:52
Kári Snorrason

Jói Bjarna á leið í FH á láni

Jóhannes er fæddur árið 2005 og á að baki 10 leiki fyrir U21-landsliðið.

Jóhannes er fæddur árið 2005 og á að baki 10 leiki fyrir U21-landsliðið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Kristinn Bjarnason er samkvæmt heimildum Fótbolta.net á leið til FH frá Víkingi á láni út tímabilið.

Jóhannes ferðaðist ekki með liðinu til Ungverjalands þar sem það mætti Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Hann gekk til liðs við Víking frá danska liðinu Kolding fyrir tímabil og skrifaði undir þriggja ára samning í Víkinni.
Jóhannes var sterklega orðaður við FH áður en hann gekk í raðir Víkings en frændi hans, Jóhannes Karl Guðjónsson, er þjálfari FH.

Hann hefur verið í litlu hlutverki hjá Víkingi á tímabilinu en miðjumaðurinn hefur komið við sögu í sjö leikjum í deild og aðeins byrjað einn þeirra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.