Fotbolti.net
15.07.26 - 22:42
Elvar Geir Magnússon

FIFA gæti refsað Argentínu - „Falklandseyjar eru okkar“

Las Malvinas son argentinas.

Las Malvinas son argentinas.

Canon

Mynd: EPA

Argentínska fótboltasambandið gæti fengið refsingu frá FIFA eftir að leikmenn liðsins fögnuðu sigrinum gegn Englandi með borða sem á stóð „Falklandseyjar eru argentínskar“ (Las Malvinas son argentinas).

Lisandro Martínez leikmaður Manchester United, Giovani Lo Celso fyrrum leikmaður Tottenham og Cristian Romero fyrirliði Tottenham voru meðal þeirra sem héldu á borðanum. Þá dansaði Lionel Messi í kringum hann.

FIFA hafði bannað skilaboð með tilvísun í Falklandseyjastríðið sem var tíu vikna stríð árið 1982 milli Breta og Argentínumanna um yfirráð yfir Falklandseyjum. Alls létust 907 manns í stríðinu.
Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma
TENGT EFNI

Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma

Falklandseyjastríðið var mikið í umræðunni í aðdraganda leiksins en Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, sagði á fréttamannafundi í gær að það tengdist leiknum ekki neitt og ekki ætti að tengja saman fótbolta og pólitík.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.