„Dreymt um þetta síðan pabbi keypti mína fyrstu skó"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lautaro Martínez var hetja Argentínu þegar liðið vann ótrúlegan endurkomusigur á Englandi í undanúrslitum á HM í kvöld.
Anthony Gordon kom Englandi yfir en Martínez tryggði Argentínu sigurinn með skallamarki í uppbótatíma eftir að Enzo Fernandez jafnaði metin stuttu áður.

TENGT EFNI
Sjáðu HM mörkin: Geggjuð argentínsk endurkoma
Eina markið hans á HM 2022 þegar Argentína varð heimsmeistari var sigurmarkið í vítaspyrnukeppni gegn Hollandi í átta liða úrslitum en þá var hann að kljást við ökklameiðsli. Hann hefur skorað þrjú mörk á mótinu til þessa.
„Þetta er ótrúlegt, alveg ótrúlegt. Mig hefur alltaf dreymt um að skora þetta mark, alveg síðan pabbi keypti mína fyrstu skó. Ég nýt alls þessa, ég nýt lífsins. Enzo Fernandez skoraði líka frábært mark. Þetta lið heldur áfram að sýna hvað í því býr," sagði Martinez