Fotbolti.net
16.07.26 - 07:30
Sævar Þór Sveinsson

Vestri margfalt minna félag fjárhagslega

Vestri tapaði fyrri leiknum.

Vestri tapaði fyrri leiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vestri eru ríkjandi bikarmeistarar og byrjar því í 1. umferð Evrópudeildarinnar. Í fyrstu viðureign Vestra mæta þeir Qarabag, meisturunum frá Aserbaísjan. Fyrri leikur liðanna fór fram þann 9. júlí síðastliðinn í Aserbaísjan og enduðu leikar 3-0 fyrir Qarabag. Liðin mætast núna aftur í dag hér á Íslandi.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 12. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistilinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.


Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Rekstrarreikningur Qarabag er margfalt stærri en hjá Vestra. Tekjur Qarabag á síðasta ári voru í heild sinni rúmlega 5.520 milljónir króna en tekjur Vestra voru einungis 280 milljónir króna. Tekjurnar hjá Qarabag eru því 1.868% hærri en hjá Vestra. Miðasölutekjurnar einar og sér hjá Qarabag voru 167 milljónir króna á síðasta ári. Stærsti hluti tekna Qarabag kom þá vegna árangurs í Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili, en samkvæmt ársreikningnum voru 4.572 milljónir tekjufærðar vegna þess.

Qarabag átti eignir upp á 2.985 milljónir króna og þar af voru 270 milljónir króna handbært fé, tæplega 9% af eignunum. Hjá Vestra námu eignir 55 milljónum króna, þar af 10 milljónir króna í handbært fé.

Skuldirnar hjá Qarabag voru töluvert hærri, eða rúmlega 1.111 milljónir króna á meðan skuldir Vestra námu 40 milljónum króna. En ef litið er á skuldahlutfallið þá var það 37% hjá Qarabag en 73% hjá Vestra.

UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana
TENGT EFNI

UTAN VALLAR: Ársreikningar íslensku liðanna bornir saman við Evrópuandstæðingana

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.