Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 01. ágúst 2021 22:39
Victor Pálsson
Vill mest semja við Real en er opinn fyrir Chelsea
Mynd: EPA
Jules Kounde, leikmaður Sevilla, mun glaður ganga í raðir Chelsea í sumar að sögn blaðamannsins Duncan Castles.

Kounde spilaði 34 leiki fyrir lið Sevilla í sumar og lék svo einnig einn leik með franska landsliðinu á EM í sumar.

Samkvæmt Castles er það draumur Kounde að spila fyrir lið Real Madrid en hann vill þó semja við Chelsea sem hefur mikinn áhuga.

„Hann mun glaður færa sig til Chelsea. Við höfum sagt í dágóðan tíma að hann væri mest til í Real Madrid en þeir hafa ekki boðið í hann," sagði Castles.

„Einn af þeim leikmönnum sem Chelsea hefur boðið Sevilla er Kurt Zouma. Það er yfirleitt aðeins flóknara því þú þarft að fá hinn leikmanninn til að samþykkja."

Líkur eru á að Kounde gangi í raðir Chelsea í sumar en hvort Zouma fari hina leiðina verður að koma í ljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner