Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 01. september 2022 21:11
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa hafnaði þriðja tilboðinu frá Arsenal
Mynd: EPA

Aston Villa ætlar ekki að selja Douglas Luiz þrátt fyrir komu Leander Dendoncker til félagsins.


Aston Villa var að hafna þriðja tilboði Arsenal í miðjumanninn sem Sky Sports segir hafa hljóðað upp á 25 milljónir punda.

Luiz á eitt ár eftir af samningi sínum við Villa og mun líklegast yfirgefa félagið á frjálsri sölu eftir þetta tímabil, eða vera seldur ódýrt í janúar.

Hinn 24 ára gamli Luiz er mikilvægur hlekkur í byrjunarliði Villa og á 9 landsleiki að baki fyrir Brasilíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner