Jafntefli var niðurstaðan á Old Trafford í Manchester í dag þegar Aston Villa kom í heimsókn til Manchester United.
Jack Grealish kom Villa-mönnum yfir í leiknum á 11. mínútu. Jöfnunarmark Manchester United var sjálfsmark sem markvörður Aston Villa, Tom Heaton skoraði.
Í seinni hálfleik kom Victor Lindelöf heimamönnum yfir en sú forysta stóð ekki lengi þar sem Tyrone Mings jafnaði metin tveimur mínútum síðar.
Það var Aston Villa maðurinn Jack Grealish sem var valinn maður leiksins hjá Sky Sports.
Einkunnir Man Utd: De Gea (6), Lindelöf (7), Maguire (7), Wan-Bissaka (6), Mata (7), Pereira (7), Fred (7), Williams (7), James (7), Rashford (7), Martial (7).
Varamenn: Lingard (5), Shaw (5).
Einkunnir Aston Villa: Heaton (7), Guilbert (7), Konsa (7), Mings (7), Targett (7), McGinn (6), Luiz (7), Hourihane (7), El Ghazi (6), Welsey (5), Grealish (8).
Varamenn: Trezeguet (6).
Maður leiksins: Jack Grealish.
Athugasemdir