Fjölmiðlamaðurinn Bruno Andrade segir að enska úrvalsdeildrfélagið Everton sé að vinna í því að kaupa brasilískan kantmann með sama nafn og félagið; Everton.
Everton hefur hafið viðræður við Gremio, félagið sem Everton spilar fyrir Brasilíu. Andrade segir að Everton muni leggja fram 35 milljón punda tilboð í leikmanninn.
Everton, eða Everton Sousa Soares eins og hann heitir fullu nafni, er 23 ára gamall og hefur verið að gera mjög flotta hluti með Gremio í heimalandinu.
Þá er hann í brasilíska landsliðinu. Hann á 14 landsleiki og þrjú mörk fyrir þjóð sína.
Everton, félagið það er að segja, hefur ekki gengið vel í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er í 17. sæti fyrir leik sinn í dag gegn Leicester.
Gylfi Þór Sigurðsson er á mála hjá Everton.
Athugasemdir