Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 01. desember 2021 22:32
Brynjar Ingi Erluson
Spánn: Benzema sá um Athletic Bilbao
Karim Benzema heldur áfram að skora
Karim Benzema heldur áfram að skora
Mynd: EPA
Real Madrid 1 - 0 Athletic
1-0 Karim Benzema ('40 )

Franski framherjinn Karim Benzema skoraði eina mark leiksins er Real Madrid vann Athletic Bilbao í spænsku deildinni í kvöld, 1-0.

Markið skoraði hann á 40. mínútu. Marco Asensio átti skot sem var varið út á Luka Modric. Króatinn reyndi skot en hitti boltann illa og datt hann fyrir Benzema sem skoraði.

Tólfta mark hans í deildinni á tímabilinu og sautjánda mark hans í öllum keppnum.

Real Madrid er á toppnum með 36 stig, sjö stigum meira en Atlético sem á leik inni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner