Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fim 01. desember 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Rice: Elska að spila með Bellingham
Mynd: Getty Images
Declan Rice, fyrirliði West Ham, er lykilmaður á miðju enska landsliðsins og algjör leiðtogi í enska hópnum. Hann sagði frá því á fréttamannafundi í morgun að hann nýtur þess að spila við hlið Jude Bellingham.

„Ég elska að spila með honum. Hann er ungur og kraftmikill og er að standa sig afskaplega vel," segir Rice.

„Fyrir alla leiki segi ég við hann að þetta sé hans svið og ég sé til staðar fyrir hann. Við erum að ná mjög vel saman."

„Hann hefur skorað mörg mörk á þessu ári þar sem hann hleypur inn í teiginn og klárar. Vonandi getur hann haldið áfram að búa til mörk handa okkur."

England mætir Senegal í 16-liða úrslitum á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner