Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Niðurtalningin - Hver er pælingin hjá Val?
Niðurtalningin – Húsvíkingurinn í brúnni á Akureyri
Niðurtalningin - Himnasending sem kom til Eyja í fyrra
Niðurtalningin - Nýliðar sem ætla að spila sambabolta
Fótbolta nördinn - Njarðvík vs Grindavík
Hugarburðarbolti GW 32 Rosaleg spenna!
Niðurtalningin - Nýir vindar blása um í dal draumanna
Enski boltinn - Stressið tekur öll völd
Innkastið - Ferskir nýliðar og vandræðagangur hjá Val
Útvarpsþátturinn - Óheppileg mistök og vítakall
Enski boltinn - Sjokkerandi lélegt hjá Liverpool
Útvarpsþátturinn - Stóri upphitunarþátturinn fyrir Bestu
Niðurtalningin - Skjöldurinn verður loksins kyrr
Hugarburðarbolti - Extra Fantasy fráhvörf
Besta spjallið: Damir, Jón Þór og Gummi Ben rýna í liðin
Niðurtalningin - Tímabilið í fyrra stórslys í Kópavoginum
Niðurtalningin - Pressan í Garðabænum meiri en áður
Fótbolta nördinn - SÝN vs Fótbolti.net
Niðurtalningin - Mikil spenna eftir stór leikmannakaup
Niðurtalningin - Skála í kampavíni af öðru tilefni í sumar
   sun 02. mars 2014 15:10
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Bjarni Jó: Menn eiga að stíga á bremsuna
Bjarni setur stefnuna á Pepsi-deildina.
Bjarni setur stefnuna á Pepsi-deildina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í spilaranum hér að ofan má heyra viðtal við Bjarna Jóhannsson, þjálfara KA, úr útvarpsþættinum Fótbolti.net í gær. Byrjað var að ræða við Bjarna um Jóhann Helgason sem gekk í raðir félagsins í liðinni viku.

„Það er frábært að fá hann. Okkur veitir ekki af reynslumiklum mönnum í þennan hóp okkar í dag. Jói er fæddur og uppalinn KA-maður og það er mjög traust að fá svona menn til baka," segir Bjarni en miklar breytingar eru á liði KA.

„Við erum að taka nýja stefnu í þessu og erum að byggja upp nýtt og ungt lið. Við ætlum að fara hægt í málin þegar við skoðum nýja menn. Við ætlum að reyna að fá meiri gæði í þessa menn sem við erum að fá til félagsins og taka þá gæðin fram yfir magnið. Við eigum fullt af fínum strákum en ég tel að menn eigi að stíga á bremsuna í útlendingavæðingunni."

„Það eru sextán leikmenn horfnir á braut síðan í haust svo það eru gríðarlega miklar breytingar á hópnum hjá okkur en á móti kemur eigum við marga leikmenn í yngri landsliðum. Það eru spennandi árgangar að koma upp og það verður að gefa þeim mínútur."

KA hafnaði í sjötta sæti 1. deildarinnar í fyrra en stefnan er sett upp í Pepsi-deildina.

„Það verður alltaf að vera markmiðið að fara upp. Klúbbur eins og KA á að vera í efstu deild. Þess vegna megum við ekki missa sjónar á því að við ætlum upp og setjum þá pressu á okkur," segir Bjarni Jóhannsson.
Slapp