Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 02. mars 2020 11:15
Magnús Már Einarsson
Almenn miðasala á leik Íslands og Rúmeníu hefst í hádeginu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Almenn miðasala á leik Íslands og Rúmeníu í umspili undankeppni EM 2020 hefst klukkan 12:00 í dag.

Ársmiðahafar og haustmiðahafar fengu að kaupa miða á leikinn í síðustu viku.

Leikurinn fer fram 26. mars og verður leikinn á Laugardalsvelli. Sigurvegari viðureignarinnar mætir Búlgaríu eða Ungverjalandi í leik um laust sæti í lokakeppni EM 2020.

Almenn miðasala hefst í hádeginu en mest er hægt að kaupa 4 miða.

Þrjú miðaverð verða í boði:
3500 krónur
5500 krónur
7500 krónur

50% afsláttur verður í boði fyrir 16 ára og yngri.
Athugasemdir
banner
banner