Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 02. apríl 2021 19:21
Brynjar Ingi Erluson
Kante ekki með gegn WBA og Porto
N'golo Kante í leik með Chelsea á tímabilinu
N'golo Kante í leik með Chelsea á tímabilinu
Mynd: Getty Images
N'golo Kante, miðjumaður Chelsea, verður ekki með liðinu gegn WBA og Porto en Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, staðfesti þessar fregnir í dag.

Kante meiddist í 1-1 jafntefli Frakklands gegn Úkraínu í undankeppni HM á dögunum og var sendur aftur til Bretlandseyja þar sem hann fær aðhlynningu.

Nú er hins vegar ljóst að hann missir af leik Chelsea um helgina gegn WBA og þá verður hann ekki með í fyrri leiknum gegn Porto í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Kante hefur verið einn besti leikmaður Chelsea síðustu ár eða síðan hann kom frá Leicester. Hann var þá með mikla yfirburði á vellinum er Chelsea lagði Atlético í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

„Hann missir af leiknum á morgun og verður ekki í hópnum en þetta eru smávægileg meiðsli í vöðva. Ég tel raunhæft að hann verði með í seinni leiknum gegn Porto," sagði Tuchel.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner