Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 02. apríl 2023 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Ancelotti staðfestir áhuga Brasilíu - „Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, staðfesti áhuga brasilíska fótboltasambandsins, á blaðamannafundi fyrir leik Madrídinga gegn Real Valladolid.

Brasilíska sambandið er í leit að landsliðsþjálfara fyrir karlalandsliðið eftir að Tite var látinn fara eftir HM í Katar.

Ancelotti, sem er einn sigursælasti þjálfari Evrópu, hefur verið orðaður við starfið síðustu vikur og staðfesti Ednaldo Rodrigues, forseti sambandsins, áhuga á Ancelotti.

Ítalski þjálfarinn hefur nú sjálfur opinberað áhuga sambandsins og segir hann að þetta sé eitthvað sem hann sé spenntur fyrir, en að hann ætli að virða samning sinn við Real Madrid. Hann vildi þó ekki loka á möguleikann á að taka við Brasilíu.

„Þetta er satt. Brasilíska sambandið vill að ég verði þjálfari landsliðsins og það er eitthvað sem vekur spennu hjá mér. Það getur hver sem er sagt það sem þeir vilja, en þetta er raunveruleikinn. Ég sagði við þá að ég væri með samning hjá Real Madrid og ætla ég mér að virða hann. Það er svo einfalt og nú þegar ég hef sagt þetta þá veit enginn hvað framtíðin ber í skauti sér,“ sagði Ancelotti á blaðamannafundinum.
Athugasemdir
banner
banner