Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 02. maí 2021 17:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikar kvenna: Álftanes síðasta liðið áfram
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
SR 1 - 3 Álftanes
1-0 Tara Sveinsdóttir ('36)
1-1 Mist Smáradóttir ('69)
1-2 Elín Halldóra Erlendsdóttir ('95)
1-3 Sara Regína Rúnarsdóttir ('107)

Álftanes er síðasta liðið sem kemst áfram í þriðju umferð Mjólkurbikars kvenna.

Álftanes sótti SR heim í Laugardalnum í dag en úr varð hörkuleikur á milli tveggja liða sem spila í 2. deild í sumar.

SR tók forystuna í leiknum en Álftanes jafnaði þegar Mist Smáradóttir skoraði. Staðan var jöfn þegar flautað var til leiksloka og því þurfti að fara í framlengingu. Þar reyndist Álftanes sterkari og urðu lokatölur 1-3 í þessum leik.

Álftanes mun í næstu umferð mæta Grindavík, sem er í Lengjudeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner