02.06.16 - 17:50
Elvar Geir Magnússon
Dagný Brynjars: Verið bras að snúa klukkunni
Auglýsing

Dagný mætir á æfingu Íslands á Falkirk Stadium í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslenska kvennalandsliðið æfði í dag á keppnisvallinum hér í Falkirk í Skotlandi þar sem leikið verður gegn heimaliðinu á morgun 17:45 að íslenskum tíma. Ísland og Skotland berjast um efsta sæti riðilsins en Skotar eru með 15 stig eftir 5 leiki en Ísland með 12 stig eftir 4 leiki.
Þetta eru tvö svipuð lið og þetta verður hörkuleikur. Við ætlum að spila svipað og við höfum verið að gera undanfarið, við ætlum að byrja í hápressu og spila upp á þeirra veikleika,\" segir Dagný Brynjarsdóttir, lykilmaður íslenska liðsins.
„Bæði lið eru með fullt af góðum leikmönnum en ef við náum fram okkar leik þá held ég að við eigum að taka þetta.\"
Dagný spilar með Portland Thorns í Bandaríkjunum og hennar ferðalag í leikinn var talsvert lengra en hjá öðrum leikmönnum.
„Ég spilaði á sunnudag, ferðaðist allan mánudaginn og var svo komin hingað á þriðjudaginn. Tímamismunurinn er átta tímar og það hefur verið bras að snúa þessu við en þetta er allt að koma. Ég held að þetta verði komið á morgun,\" segir Dagný sem er að lokum spurð að því hvort Portland Thorns sé að uppfylla allar hennar væntingar?
„Já þetta er geggað, það eru geggjaðir leikmenn í liðinu. Ég held að það séu 15 þúsund að meðaltali á leik hjá okkur. Þetta hefur verið vonum framar og ég er mjög ánægð þarna.\"
Viðtalið við Dagný er í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan en þar talar hún meðal annars um óvæntu brunaæfinguna síðustu nótt.