Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 17:08
Elvar Geir Magnússon
Fulham kveður Silva - „Félagið verður alltaf í mínu hjarta“
Mynd: EPA
Fulham hefur staðfest að Marco Silva sé hættur sem stjóri liðsins. Eins og hefur verið fjallað um þá er hann að taka við Benfica í heimalandi sínu, Portúgal.

Hann tekur við Benfica af Jose Mourinho sem er að snúa aftur til Real Madrid. Benfica hafnaði í þriðja sæti í portúgölsku deildinni og fer í Evrópudeildina.

„Fulham og Marco náðu frábærlega saman í fimm tímabil en breytingar eru óhjákvæmilegar í þessari íþrótt og við höfum því undirbúið okkur fyrir að þessi stund kæmi,“ segir Shahid Khan, eigandi Fulham. Félagið bauð Silva nýjan samning en hann hefur ákveðið að breyta til.

Á heimasíðu Fulham birtist opið bréf Silva til stuðningsmanna.

„Ég bað ykkur um það frá degi eitt að vera alltaf með okkur og það gerðuð þið í fimm ár. Við afrekuðum ýmislegt saman. Ég og mitt teymi fundum alltaf ykkar stuðning. Fulham verður alltaf í mínu hjarta," segir Silva.

Silva stýrði Fulham í fimm ár við góðan árangur. Liðið hefur hafnað í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar síðustu tvö tímabil.

Guardian segir að Kieran McKenna stjóri Ipswich og Thomas Frank fyrrum stjóri Tottenham og Brentford komi til greina sem næsti stjóri Fulham.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner