Spænsk stórlið vilja Cucurella - Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
   þri 02. júní 2026 09:30
Elvar Geir Magnússon
Spænsk stórlið vilja Cucurella - Arsenal hyggst fá Rogers og Kroupi
Powerade
Marc Cucurella.
Marc Cucurella.
Mynd: EPA
Eli Junior Kroupi.
Eli Junior Kroupi.
Mynd: EPA
Marcus Rashford.
Marcus Rashford.
Mynd: EPA
Marc Cucurella varnarmaður Chelsea er á óskalistum spænskra stórliða, Liverpool heldur áfram að reyna við Diomande og Arsenal er með sumaráætlanir fyrir gluggann. Þetta og fleira í slúðurpakkanum.

Marc Cucurella (27), varnarmaður Chelsea, er orðaður við endurkomu til Spánar. Framtíð hans á Stamford Bridge er í óvissu og spænsku félögin Atletico Madrid, Barcelona og Real Madrid hafa öll áhuga á spænska landsliðsmanninum. (The Athletic)

Liverpool vill fá Yan Diomande (19), framherja RB Leipzig, en hefur ekki náð munnlegu samkomulagi um samning við þennan unga sóknarmann Fílabeinsstrandarinnar. (Sky Sports)

Englandsmeistarar Arsenal eru með sumaráætlanir um að kaupa Morgan Rogers (23) frá Aston Villa en leikmaðurinn ku vera áhugasamur um að ganga í raðir félagsins. Þá vill Arsenal einnig fá franska framherjann Eli Junior Kroupi (19) frá Bournemouth. (BBC)

Þá er í algjörum forgangi að gera nýjan samning við Mikel Arteta. (BBC)

Hægri bakvörðurinn Marco Palestra (21) hjá Atalanta er á óskalista Newcastle en Manchester City, Arsenal og Inter hafa einnig áhuga. (Mail)

David Beckham vill fá Pep Guardiola til að taka við Inter Miami. Guardiola mun hinsvegar hafna öllum tilboðum um að snúa aftur í stjórastarf strax. (Mirror)

Portúgalski miðjumaðurinn Bernardo Silva (31), sem hefur yfirgefið Manchester City, ætlar að skrifa undir tveggja ára samning við Barcelona og vill að það verði gert opinbert fyrir vikulok. (AS)

Enski framherjinn Marcus Rashford (28) gæti þurft að koma til móts við Manchester United á undirbúningstímabilinu þar sem ekkert er að frétta í viðræðum við Barcelona þar sem hann var á láni. (Times)

Manchester United vill losa Rashford til að hjálpa Michael Carrick að fá meiri pening til að styrkja liðið. Arsenal, Chelsea, Newcastle og Tottenham fylgjast með gangi mála en United vill helst ekki selja hann til samkeppnisliða. (Mirror)

Nottingham Forest mun ræða við miðjumanninn Ibrahim Sangare (28) um nýjan samning. Manchester United og Besiktas hafa áhuga á Fílabeinsstrendingnum. (Football Insider)

Hayden Hackney (23), miðjumaður Middlesbrough, er á óskalista Manchester United. Carrick vann með honum hjá Boro. (Northern Echo)

Evann Guessand (24), framherji Fílabeinsstrandarinnar, er að skoða stöðu sína eftir að klásúla Crystal Palace um að geta keypt hann eftir lánsdvölina frá Aston Villa rann út. (Evening Standard)

Anthony Patterson (26) markvörður Sunderland er á óskalista Wrexham en velska félagið þarf að sannfæra Sunderland um að lækka verðmiðann í 8-10 milljónir punda. (Sky Sports)

Aston Villa er tilbúið að láta spænska hægri bakvörðinn Andres Garcia (23) fara á láni í sumar en Valencia og Elche eru meðal félaga sem hafa áhuga. (Tribuna Deportiva)

Tottenham vill fá kantmanninn Jean-Matteo Bahoya (21) en þýska félagið Eintracht Frankfurt mun ekki láta franska leikmanninn fara ódýrt. (Teamtalk)
Slapp
banner
banner