Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 02. júlí 2020 22:25
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guardiola: Ekkert áfengi í blóði þeirra
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
„Við unnum meistarana, ótrúlegt lið," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City, eftir 4-0 sigur á Englandsmeisturum Liverpool í kvöld.

Guardiola hrósaði báðum liðum fyrir að sýna hugrekki í spilamennsku.

„Mér líkar vel við lið mitt í hverjum einasta leik. Við reyndum að spila fótbolta og taka áhættur. Ég hef aldrei mætt betra liði (en Liverpool) þegar kemur að hápressu. Við vorum hugrakkir að spila fótbolta í litum svæðum."

„Ég sá það þegar við tókum heiðursvörð fyrir þá hversu einbeittir þeir voru. Þeir þökkuðu ekki fyrir því þeir voru svo einbeittir á leikinn."

„Þeir hafa drukkið mikið af bjórum síðastliðna viku en það var ekki áfengi í blóði þeirra í kvöld."
Athugasemdir
banner
banner
banner