Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 02. ágúst 2022 17:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið KA og KR: Liðin gera samtals fimm breytingar
Stefan Ljubicic er í byrjunarliði KR
Stefan Ljubicic er í byrjunarliði KR
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

KA og KR mætast á Greifavellinum á Akureyri í fimmtándu umferð Bestu deildarinnar í kvöld. Byrjunarliðin eru klár.


Lestu um leikinn: KA 0 -  1 KR

KR hefur beðið lengi eftir sigri en liðið er án sigurs í síðustu sex leikjum. KA er hins vegar á góðu skriði og kemst upp í 2. sæti deildarinnar með sigri.

Það eru tvær breytingar á liði KA frá 3-1 sigri í Keflavík. Bryan Van Den Bogaert og Ívar Örn Árnason taka út leikbann. Gaber Dobrovoljc spilar sinn fyrsta leik og Þorri Mar Þórisson kemur einnig inn í liðið.

Það eru þrjár breytingar á liði KR sem gerði 3-3 jafntefli gegn Val í síðustu umferð. Ægir Jarl Jónasson og Hallur Hansson taka út leikbann og þá fékk Grétar Snær Gunnarsson höfuðhögg gegn Val og er ekki í hópnum í dag.

Þorsteinn Már Ragnarsson, Stefán Ljubicic og Aron Þórður Albertsson koma inn í byrjunarliðið í þeirra stað.


Byrjunarlið KA:
12. Kristijan Jajalo (m)
3. Dusan Brkovic
4. Rodrigo Gomes Mateo
7. Daníel Hafsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson (f)
21. Nökkvi Þeyr Þórisson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
27. Þorri Mar Þórisson
28. Gaber Dobrovoljc
30. Sveinn Margeir Hauksson

Byrjunarlið KR:
1. Beitir Ólafsson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
8. Þorsteinn Már Ragnarsson
11. Kennie Chopart (f)
15. Pontus Lindgren
16. Theodór Elmar Bjarnason (f)
17. Stefan Ljubicic
18. Aron Kristófer Lárusson
23. Atli Sigurjónsson
29. Aron Þórður Albertsson
33. Sigurður Bjartur Hallsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner