Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. október 2020 21:09
Victor Pálsson
Sadio Mane með kórónuveiruna - Ekki með um helgina
Mynd: Getty Images
Sadio Mane, leikmaður Liverpool, mun ekki spila með liðinu gegn Aston Villa á sunnudaginn í ensku úrvalsdeildinni.

Frá þessu er greint í kvöld en Mane er með kórónuveiruna og mun ekki taka þátt vegna þess.

Mane er annar leikmaður Liverpool til að greinast með veiruna á stuttum tíma en Thiago Alcantara veiktist einnig. Hann kom til liðsins í sumar.

Mane mun ekkert taka þátt á æfingum Liverpool næstu tíu dagana en leikurinn við Villa er sá síðasti fyrir landsleikjahlé.

Búist er því við því að sóknarmaðurinn verði klár þann 17. október þegar Liverpool mætir Everton í efstu deild.

Liverpool er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki fyrir leikinn gegn Villa sem er á Villa Park klukkan 18:15.

Athugasemdir
banner
banner
banner