Fotbolti.net
02.11.23 - 11:12
Elvar Geir Magnússon

Telur að Kristinn sé ósáttur með ráðninguna

Kristinn Jónsson.

Kristinn Jónsson.

Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Varnarmennirnir Kristinn Jónsson og Kennie Chopart hafa tilkynnt það á undanförnum dögum að þeir hafi leikið sinn síðasta leik fyrir KR en samningar þeirra eru á enda.

Mikael Nikulásson, þjálfari KFA og þáttastjórnandi í Þungavigtinni, telur að Kristinn sé ósáttur við ráðninguna á Gregg Ryder sem kynnt var um síðustu helgi. Kristinn hafði sagt í viðtali að hann ætlaði að taka ákvörðun um framtíð sína eftir að í ljós kæmi hver tæki við þjálfun KR.

   01.11.2023 21:11
Kiddi Jóns yfirgefur KR (Staðfest)
„Ég held að þessir tveir hafi verið þreyttir á biðinni og mögulega ósáttir með að Rúnar hafi verið látinn fara. Kristinn sagði að hann ætlaði að bíða og sjá hver yrði ráðinn, hann er einfaldlega að segja að hann sé ekki sáttur við ráðninguna," segir Mikael í Þungavigtinni en hann segist hræddur fyrir hönd KR varðandi næsta tímabil.

„Þeir voru ekkert frábærir í sumar en klárlega tveir af ellefu bestu leikmönnunum. Miðað við styrkleikann á KR hópnum í dag þá máttu þeir ekki við þessu."

Kristinn bíður og sér hver tekur við áður en hann tekur ákvörðun
TENGT EFNI

Kristinn bíður og sér hver tekur við áður en hann tekur ákvörðun

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.