Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. desember 2019 09:45
Elvar Geir Magnússon
Ballon d'Or í kvöld - Á Van Dijk möguleika gegn Messi?
Ballon d'Or gullknötturinn verður afhentur í kvöld.
Ballon d'Or gullknötturinn verður afhentur í kvöld.
Mynd: Getty Images
Ballon D'Or gullknötturinn verður afhentur í París í kvöld en sagan segir að Lionel Messi fái þar verðlaunin í sjötta sinn, sem væri met.

En Virgil van Dijk, varnarmaður Liverpool, veitir argentínska snillingnum samkeppni.

Twitter aðgangur sem er nafnlaus birti lokaniðurstöðuna en ekki er sannað hvort sá listi sé uppspuni eða raunveruleg niðurstaða.

Á þeim lista endar Van Dijk númer tvö og liðsfélagi hans Mohamed Salah númer þrjú, rétt á undan Cristiano Ronaldo sem hefur unnið gullknöttinn fimm sinnum.

Það eru íþróttafréttamenn um allan heim sem taka þátt í kjörinu en fulltrúi Íslands er Víðir Sigurðsson á Morgunblaðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner