Franski kantmaðurinn Ousmane Dembele skoraði glæsilegt mark fyrir Barcelona gegn Sevilla í spænska bikarnum í kvöld.
Hinn 23 ára gamli Dembele hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar frá því hann var keyptur til Barcelona frá Borussia Dortmund 2017. Talið er að upphæðin sem hann var keyptur fyrir gæti farið upp í 145 milljónir evra.
Vandamál utan vallar og meiðsli hafa haft mikil áhrif á feril Dembele hjá Börsungum.
Dembele er núna búinn að skora í tveimur leikjum í röð, í bæði skiptin gegn Sevilla. Mark hans frá því í kvöld má sjá hérna.
Gonzalo Zamorano, sóknarmaður ÍBV, finnst mikið til Dembele koma. „Án meiðsla, þá er Dembele einn af bestu leikmönnum í heimi," skrifar Zamorano á spænsku á Twitter í kvöld.
O. Dembélé sin lesiones, es un jugador top mundial
— Gonzalo Zamorano (@Gonza_zam9) March 3, 2021
Athugasemdir