Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 03. apríl 2021 14:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Böddi og Aron lögðu upp í sigrum - Alex, Oskar og Valgeir komu við sögu
Mynd: Sirius
Häcken, Helsingborg og Sirus báru sigurorð í æfingaleikjum í Svíþjóð í dag.

Häcken lagði Varbergs 4-1 þar sem tveir leikmenn Varbergs fengu að líta rauða spjaldið. Helsingborg vann 2-1 sigur á Östers og Sirius lagði Vasteras með 1-2 sigri þar sem Sirius var skráð sem gestalið.

Böðvar Böðvarsson lék sjötíu mínútur með Helsinborg og átti hlut í marki liðsins. Alex Þór Hauksson kom inn á í seinni hálfleik hjá Östers og spilaði stundarfjórðung eða svo. Alex hefur verið að spila meira en var að snúa til baka úr lokakeppni Evrópumótsin með U21 og var korterið niðurstaðan í dag.

Aron Bjarnason var í byrjunarliði Sirius og lék á hægri kanti í leikkerfinu 3-4-3. Aron spilaði 86 mínútur og lagði upp annað af mörkum Christian Kouakou sem skoraði bæði mörkin.

Oskar Tor Sverrisson var þá í byrjunarliði Häcken en Valgeir Lunddal Friðriksson byrjaði á bekknum. Valgeir kom inn á á 65. mínútu og Oskar spilaði fyrstu 85 mínúturnar.

Häcken og Sirius leika í Allsvenskan en Östers og Helsinborg í Superettan. Deildirnar byrja um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner