Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 03. maí 2021 10:46
Elvar Geir Magnússon
Máni Austmann á leið til landsins - Með Leikni gegn Blikum
Máni Austmann mætir aftur í Leikni.
Máni Austmann mætir aftur í Leikni.
Mynd: Haukur Gunnarsson
Nýliðar Leiknis gerðu markalaust jafntefli gegn Stjörnunni í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar um helgina.

Sóknarleikmaðurinn Máni Austmann Hilmarsson var ekki með Breiðhyltingum í leiknum þar sem hann er í háskóla í Bandaríkjunum og spilar með University of North-Carolina Greensboro.

Lið hans er úr leik í úrslitakeppni háskólaboltans og Máni kemur til Íslands á morgun. Hann hefur verið að spila gríðarlega vel í háskólaboltanum og verið iðinn við markaskorun.

Máni fékk bólusetningu í Bandaríkjunum og er því klár í slaginn fyrir Leikni þegar liðið tekur á móti Breiðabliki í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar á laugardagskvöld.

Máni er 22 ára gamall og lék spilaði stórt hlutverk í Lengjudeildinni í fyrra þegar liðið komst upp í Pepsi Max-deildina. Hann skoraði sex mörk í tuttugu leikjum. Tvíburabróðir hans, Dagur, leikur einnig með Leikni og spilaði í leiknum í Garðabæ.
Athugasemdir
banner
banner
banner