Kári í 2. deildinni hefur fengið króatíska markvörðinn Dino Hodzic í sínar raðir frá ÍA.
Dino kom til ÍA um mitt síðastliðið sumar og var varamarkvörður liðsins í Pepsi Max-deildinni síðari hluta tímabils.
Dino kom til ÍA um mitt síðastliðið sumar og var varamarkvörður liðsins í Pepsi Max-deildinni síðari hluta tímabils.
Kári hefur einnig fengið miðjumanninn Jón Björgvin Kristjánsson frá Dalvík/Reyni.
Jón Björgvin er uppalinn hjá ÍA en hann hefur leikið með Dalvík/Reyni undanfarin þrjú ár.
Á ferli sínum hefur hann einnig leiki með Þór, Gróttu, KF og ÍA.
Kári hefur leik í 2. deildinni gegn Selfossi miðvikudaginn 17. júní en um helgina mætir liðið KV í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins.
Gunnar Einarsson var ráðinn nýr þjálfari Kára í gær.
Athugasemdir