Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Queiroz um Partey: Saklaus uns sekt er sönnuð
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Carlos Queiroz, portúgalskur landsliðsþjálfari Gana, hefur komið einum af stjörnuleikmönnum sínum til varnar fyrir lokamót HM.

Thomas Partey er í hópnum sem fer á lokamótið og hefur Queiroz fengið gagnrýni fyrir að velja hann í ljósi ákæranna gegn honum vegna meintra nauðgana.

Partey var mikilvægur hlekkur í liði Arsenal áður en hann skipti til Villarreal og hefur verið kærður fyrir sjö nauðganir og eina kynferðislega árás frá árinu 2020 til 2022.

Partey hefur neitað allri sök og á dómsmálið að fara fram í nóvember samkvæmt skipulagi. Fjórar mismunandi konur ásaka Partey um nauðgun eða kynferðislegt ofbeldi.

„Þetta er mjög einfalt svar. Ég veit ekki betur en að í öllum heiminum þá tíðkist það að menn séu saklausir uns sekt er sönnuð, hvort sem það er í Englandi eða í Portúgal. Við verðum að trúa því að hann sé saklaus þar til niðurstaða fæst í dómsmálið," segir 73 ára gamall Queiroz sem á magnaðan þjálfaraferil að baki.

Gana er í erfiðum riðli á HM ásamt Englandi, Króatíu og Panama. Þeir eru þó með Antoine Semenyo í sínum röðum ásamt Championship-stjörnunum Abdul Fatawu, Brandon Thomas-Asante og Jordan Ayew.

   02.06.2026 10:24
Partey spilar á HM með nauðgunarkærur hangandi yfir sér


Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp