Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 11:25
Elvar Geir Magnússon
Rashford á HM með framtíðina í limbói
Mynd: EPA
Marcus Rashford verður væntanlega í byrjunarliði Englands þegar HM fer af stað en hann mætir á mótið með framtíð sína í algjörri óvissu.

Rashford verð Spánarmeistari með Barcelona þar sem hann lék á lánssamningi frá Manchester United á liðnu tímabili. Sigurmark hans gegn Real Madrid úr aukaspyrnu gleymist seint.

Rashford hefur ekki farið leynt með að hans vilji sé að vera áfram hjá Barcelona og samkvæmt nýjustu fréttum er það vilji katalónska félagsins að fá hann alfarið. Kaupin á Anthony Gordon og launakröfur Rashford flækja stöðuna hinsvegar mikið.

Rashford skoraði átta mörk og átti níu stoðsendingar í La Liga og Börsungar virðast ekki sannfærðir um að rétt sé að galopna veskið fyrir hann.

Manchester United vill fá um 26 milljónir punda fyrir Rashford sem er ekki í áætlunum félagsins en samningur hans er til 2028.

Rashford hefur verið orðaður við Arsenal og einnig við endurkomu til Aston Villa þar sem hann lék á lánssamningi. Búast má við því að eitthvað fari að skýrast í hans málum þegar sumarglugginn opnar þann 15. júní.

Svo gæti þessi mikli auglýsingagluggi sem HM er breytt ýmsu!
Slapp
banner
banner