Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 03. júlí 2021 22:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Shaw svarar ekki bara Mourinho utan vallar
Mynd: EPA
Við sögðum frá því fyrir nokkrum dögum síðan að Jose Mourinho gagnrýndi Luke Shaw.

Mourinho er fyrrum stjóri Shaw hjá Manchester United, en Mourinho var óhræddur að skjóta á Shaw opinberlega þegar hann var að þjálfa hann.

Mourinho náði ekki því besta út úr vinstri bakverðinum, en Ole Gunnar Solskjær hefur gefið leikmanninum meira traust.

Shaw svaraði gagnrýni Mourinho með því að segja: „Ég orðinn vanur því að hann tali í neikvæðni um mig. Ég reyni að hundsa það... Hann verður að halda áfram með sitt. Vonandi getur hann fundið frið til þess að hætta að hafa áhyggjur um mig. Hann hugsar klárlega mikið um mig."

Shaw hefur ekki bara svarað gagnrýninni utan vallar. Hann hefur líka gert það innan vallar. Vinstri bakvörðurinn hefur verið stórkostlegur í undanförnum leikjum Englands.

Hann var maður leiksins í 4-0 sigrinum á Úkraínu í átta-liða úrslitunum á EM í kvöld, að mati Daily Mail.

„Er að vaxa í ensku landsliðstreyjunni. Aftur var hann stórkostlegur í kvöld. Var sterkur í vörninni og hjálpaði líka sóknarlega. Tvær frábærar stoðsendingar," segir í umsögn um Shaw sem fær níu í einkunn.
Athugasemdir
banner
banner
banner