2. deild kvenna: Vestrakonur afgreiddu KFR í fyrri hálfleik

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Vestri 7 - 0 KFR
1-0 Jayla Finley Ponce ('2, víti )
2-0 Rachel Angelina Bastone ('11 )
3-0 Chloe Hennigan ('14 )
4-0 Pálína Björk Bjarnadóttir ('19 , sjálfsmark)
5-0 Freyja Rún Atladóttir ('34 )
6-0 Briana Carrington Myers ('38 )
7-0 Raniyah Ajanai Marie Burton ('43 )

Vestri slátraði KFR, 7-0, í 2. deild kvenna á Kerecis-vellinum á Ísafirði í gær. Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik.
Vestrakonur hafa byrjað mótið nokkuð sterkt og ekki enn tapað leik.
Þær unnu síðan fjórða leik sinn með stæl þegar KFR kom í heimsókn, en sjö mismunandi leikmenn skoruðu mörkin.
Jayla Finley Ponce skoraði úr vítaspyrnu á 2. mínútu og bættu þær Rachel Angeline Bastone og Chloe Hennigan við mörkum áður en fimmtán mínútur voru liðnar.
Fjórða markið var sjálfsmark og þá skoruðu þær þrjú til viðbótar á níu mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks. Freyja Rún Atladóttir, Briana Carrington Myers og Raniyah Burton gerðu mörkin.
Burton er í þriðja sæti yfir markahæstu konur deildarinnar með 11 mörk.
Vestri er í 4. sæti deildarinnar með 15 stig á meðan KFR er í næst neðsta sæti með 1 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Einherji | 7 | +33 | 18 |
| 2 | Afturelding | 6 | +28 | 18 |
| 3 | Fjölnir | 6 | +24 | 16 |
| 4 | Vestri | 7 | +27 | 15 |
| 5 | Fylkir | 6 | +36 | 13 |
| 6 | Augnablik | 7 | -9 | 10 |
| 7 | KÞ | 7 | -14 | 7 |
| 8 | Dalvík/Reynir | 6 | -12 | 5 |
| 9 | ÍR | 7 | -8 | 4 |
| 10 | Álftanes | 7 | -28 | 2 |
| 11 | KFR | 6 | -22 | 1 |
| 12 | Smári | 6 | -55 | 1 |