Fotbolti.net
21.06.26 - 02:02
Brynjar Ingi Erluson

HM: Sögulegt hjá nýliðunum - Markvörðurinn með fimmtán vörslur

Eloy Room varði fimmtán bolta í leiknum

Eloy Room varði fimmtán bolta í leiknum

Canon

Mynd: EPA

Ekvador 0 - 0 Curacao
Nýliðar Curacao náðu í sitt fyrsta stig á heimsmeistaramóti þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Ekvador í E-riðlinum í Kansas City í nótt.

Maður leiksins var án nokkurs vafa Eloy Room, markvörður Curacao, sem átti stórkostlegan leik og varði fimmtán skot.

Eins og búist var við var Ekvador mun meira með boltann og liðið var nálægt því að taka forystuna snemma leiks. Enner Valencia slapp inn fyrir vörn Curacao, stýrði boltanum í átt að marki en Room varði glæsilega yfir.

Valencia hefði líklega átt að gera betur, en varsla Room gaf tóninn fyrir það sem koma skyldi.

Þótt ótrúlegt megi virðast virtist færið kveikja aðeins í leikmönnum Curacao, sem fóru ítrekað hratt fram völlinn en vantaði meiri yfirvegun á síðasta þriðjungnum.

Ekvador skapaði þó hættulegri færin. John Yeboah lét reyna á Room, Pedro Vite skaut rétt framhjá og undir lok fyrri hálfleiks sá Room við hörkuskoti Yeboah við vítateigslínuna.

Curacao átti ekki skot á markið í fyrri hálfleik en sýndi á köflum að liðið gæti valdið vandræðum.

Room hélt uppteknum hætti eftir hlé. Þegar um fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik átti Moises Caicedo, leikmaður Chelsea, skot á mark Curacao, en Room var enn og aftur mættur í hornið og handsamaði boltann.

Room er 37 ára gamall og lék lengi í hollensku úrvalsdeildinni. Hann leikur nú með Miami FC í USL-deildinni í Bandaríkjunum og hefur verið fastamaður í marki Curacao síðustu ár.

Þegar hálftími var eftir reyndi verulega á Hernan Galindez í marki Ekvador. Leandro Bacuna átti þá hörkuskot við vítateigslínuna sem Galindez varði til hliðar. Sóknin hélt áfram og boltinn barst á Livano Comenencia, sem skoraði eina mark Curacao á mótinu til þessa gegn Þjóðverjum, en aftur varði Galindez. Hann þurfti síðan að verja í þriðja sinn eftir hálffæri frá Jürgen Locadia.

Á 65. mínútu fékk Valencia dauðafæri til að koma Ekvador yfir. Boltinn kom fyrir markið og Valencia stangaði hann að marki, en enn og aftur sagði Room nei.

Strax í næstu sókn fengu Ekvadorar þrjú færi í sömu sókninni, en Room varði í öll skiptin. Lok, lok og læs hjá markverði Curacao.

Þegar síðari vatnspásan var tekin var Room kominn með tólf vörslur og aðeins fjórum frá því að jafna met Tim Howard, sem varði sextán skot fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM 2014.

Ekvador hélt áfram að reyna. Room varði þrettánda skot sitt og skömmu síðar skallaði Piero Hincapie rétt yfir markið eftir hornspyrnu.

Eftir allan þennan sóknarþunga bjuggust flestir líklega við því að markið kæmi á endanum, en Room var þrjóskur í markinu og neitaði að hleypa boltanum framhjá sér.

Ekvador pressaði allt til enda en komst aldrei í gegnum vegginn í marki Curacao. Markalaust jafntefli varð niðurstaðan og sögulegt stig staðreynd hjá nýliðunum. Room var einni vörslu frá því að jafna met Howard, en það reyndi rosalega lítið á hann á síðustu tíu mínútunum.

Ekvador situr hins vegar eftir með mikla svekkelsi og aðeins eitt stig fyrir lokaleikinn gegn Þýskalandi. Curacao á enn möguleika á að komast áfram en þarf að ná í úrslit gegn Fílabeinsströndinni í lokaumferðinni.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Úr leiknum

Úr leiknum

Canon

Mynd: EPA

Room var ótrúlegur

Room var ótrúlegur

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.