Brynar Björn: Verður barátta fram á síðasta leik
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Björn Gunnarsson þjálfari HK er ánægður með stigin sem hans menn sóttu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í dag.
Bjarni Gunnarsson gerði eina mark leiksins eftir varnarmistök heimamanna í tíðindalitlum og bragðdaufum leik.
„Það gekk illa að spila boltanum, við vorum ekki að taka góðar ákvarðanir á vellinum en við stóðum vörnina hrikalega vel og það var mikilvægt að fá ekki á sig mark," sagði Brynjar að leikslokum.
Nú er HK með 21 stig eftir 15 umferðir, aðeins tveimur stigum frá nágrönnum sínum í Breiðablik sem eru í öðru sæti en eiga þó leik til góða. Staðan í Pepsi Max-deildinni er ansi jöfn og eru HK-ingar aðeins fimm stigum fyrir ofan fallsvæðið.
„Við erum búnir að spila vel síðasta mánuðinn og safna stigum. Við vitum að þetta verður barátta sennilega fram á síðasta leik."
Að lokum var Brynjar spurður hvort HK væri í Evrópubaráttu.
„Nei við erum ekki í neinni þannig baráttu. Við erum bara í baráttu við sjálfa okkur að klára leikinn í dag. Næsta barátta hjá okkur er bara á móti KR uppí kór."