Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. ágúst 2022 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Vann 6,7 milljónir í Getraunum
Mynd: 1X2

Tipparar voru á skotskónum um verslunarmannahelgina og var einn tippari með alla leikina 13 rétta á Enska getraunaseðlinum og fær hann í sinn hlut 6,7 milljónir króna.


Tipparinn tvítryggði 9 leiki, þrítryggði 1 leik og var með 3 leiki með einu merki og kostaði getraunaseðillinn 19.968 krónur. Tipparinn styður Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar.

Svo bættist aðeins í þjóðhátíðarstemminguna hjá tipparanum frá Vestmannaeyjum sem fékk rúma eina milljón króna fyrir 12 rétta á Sunnudagsseðlinum.

Þess má geta að risapottur verður í boði á Enska getraunaseðlinum næstkomandi laugardag upp á 170 milljónir króna.


Athugasemdir
banner
banner
banner