Fotbolti.net
03.09.19 - 19:00
Magnús Már Einarsson

Hjörtur: Fínt að fá leik í bakverði fyrir þetta verkefni

Auglýsing
Hjörtur í leiknum gegn Albaníu í júní.

Hjörtur í leiknum gegn Albaníu í júní.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Hjörtur Hermannsson kom inn í hægri bakvörðinn í íslenska landsliðinu í sigrinum á Albaníu og Tyrklandi í júní. Reikna má með að Hjörtur verði áfram á sama stað gegn Moldavíu á laugardag.
„Maður vill spila með landsliðinu. Sama hvaða staða það er. Það var gaman að fá tækifæri og vonandi verður framhald á því," sagði Hjörtur vð Fótbolta.net fyrir æfingu í dag.

Hjörtur hefur verið fastamaður í byrjunarliði Bröndby í byrjun tímabils í Danmörku og mest spilað í hjarta varnarinnar.

„Ég spilaði reyndar síðasta leik í hægri bakverði og það var fínt að fá einn leik fyrir þetta verkefni. Maður er klár í það sem koma skal," sagði Hjörtur sem er spenntur fyrir leiknum gegn Moldavíu.

„Við þurfum að ná í eins mörg stig og við getum heima. Að sjálfsögðu verður þetta ekki auðveldur leikur en við þurfum að ná í eins mörg stig og við getum."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.