Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. september 2021 21:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Andri Lucas í Meistaradeildarhópi Real Madrid
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Real Madrid hefur gefið út 40 manna hóp liðsins sem tekur þátt í Meistaradeildinni á þessari leiktíð.

Nýjasti leikmaður liðsins, Eduardo Camavinga er í hópnum. Marca vakti sérstaka athygli á því að Andri Lucas Guðjohnsen væri í hópnum.

Andri sem er sonur Eiðs Smára Guðjohnsen sem eins og flestir vita lék við góðan orðstyr hjá Barcelona, helstu erkifjendum Real, frá árunum 2006-2009.

Andri lék sinn fyrsta A-landsleik í gær er hann kom inná sem varamaður gegn Rúmeníu. Eiður, aðstoðarlandsliðsþjálfari smellti kossi á son sinn áður en hann fór inná.

Real hefur leik miðvikudaginn 15. september er liðið heimsækir Inter.
Athugasemdir
banner
banner
banner