Fotbolti.net
03.11.19 - 14:25
Ívan Guðjón Baldursson

Sky: Arsenal neitar að hafa fundað með Mourinho

Sky: Arsenal neitar að hafa fundað með Mourinho
Canon

Mynd: Getty Images

Times var meðal þeirra fjölmiðla sem greindi frá því að Jose Mourinho hafi snætt kvöldverð með Raul Sanllehi, yfirmanni knattspyrnumála hjá Arsenal, í gærkvöldi.
Sky Sports spurðist fyrir um málið og neitar Arsenal þessum sögusögnum. Heimildarmaður Sky hjá Arsenal segir að Sanllehi og Mourinho hafi ekki snætt kvöldverð saman í mörg ár.

Unai Emery liggur undir þungri gagnrýni eftir slaka byrjun á tímabilinu en Arsenal er aðeins búið að vinna tvo af síðustu níu deildarleikjum sínum.

Mourinho hefur ekki þjálfað fótboltalið síðan hann var rekinn frá Manchester United í desember í fyrra. Hann var meðal áhorfenda er Arsenal lagði Vitoria Guimaraes að velli í Evrópudeildinni og er talinn hafa mikinn áhuga á að taka við félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.