Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. nóvember 2020 23:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valur og Leiknir R. fá ekki refsingu frá KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnusamband Íslands mun ekki refsa karlaliðum Vals og Leiknis R. fyrir fagnaðarlæti í síðustu viku.

KSÍ tilkynnti á föstudagskvöld að Íslandsmótinu væri lokið og Valsmenn fögnuðu því sigri í Pepsi Max-deildinni í ár. Leiknir komst einnig upp í Pepsi-Max deildina.

Um helgina birtut myndir úr fögnuðu beggja liða þar sem sáust möguleg brot á sóttvarnarlögum.

Lögregla er að rannsaka meint brot á sóttvarnarlögum en KSÍ mun ekki aðhafast í málinu. Svo segir Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, í samtali við 433.is.

„Varðandi þau tilfelli sem þú vísar til í fyrirspurn þinni er um að ræða brot á sóttvarnarreglum sem eru nú til rannsóknar hjá þar til bærum yfirvöldum. Undirrituð mun ekki vísa þessum málum til aga-og úrskurðarnefndar á grundvelli heimildar í grein 21.1 í reglugerð KSÍ um aga-og úrskurðarmál," segir Klara við fyrirspurn 433.

Sjá einnig:
Valsmenn gagnrýndir fyrir fögnuð í gærkvöldi
Yfirlýsing frá Val: Hvetjum landsmenn til að standa saman
Haukur Páll: Við áttum að vita betur
Leiknismenn gagnrýndir fyrir sinn fögnuð
Leiknir R. sendir yfirlýsingu - Harma atburðarásina
Athugasemdir
banner
banner